Lögmannsstofa í slysa- og skaðabótamálum

Við sækjum bæturnar sem þú átt rétt á

Lentir þú í slysi? Við gætum hagsmuna þinna gagnvart tryggingafélögum og tryggjum sanngjarnar bætur. Fyrsta viðtalið er ókeypis — og ef engar bætur fást greiðir þú enga þóknun.

  • Engin þóknun nema árangur náist
  • Ókeypis fyrsta viðtal
  • Áratugareynsla síðan 2004

Slys og skaðabætur er lögmannsstofa í Kópavogi sem sérhæfir sig í slysa- og skaðabótamálum. Stofan aðstoðar fólk um allt land við að sækja bætur eftir umferðarslys, vinnuslys og önnur slys — og ef engar bætur fást greiðir viðskiptavinurinn enga þóknun.

  • 20+ára reynsla af skaðabótamálum
  • 0 kr.þóknun ef engar bætur fást
  • Ókeypisfyrsta viðtal og mat á máli
  • Persónulegþjónusta frá upphafi til enda

Þjónusta

Þjónustan okkar

Við rekum öll helstu svið slysa- og skaðabótamála — frá umferðarslysum og vinnuslysum til sjúklingatryggingar og bóta til þolenda afbrota.

Umferðarslys

Slasaðist þú í umferðinni? Allir sem verða fyrir líkamstjóni vegna skráðra ökutækja eiga rétt á bótum.

Bifhjólaslys

Ökumenn skráðra bifhjóla eiga rétt á bótum úr tryggingu hjólsins — og slysatrygging getur átt við um óskráð hjól.

Vinnuslys

Þeir sem slasast við vinnu eiga alltaf einhvern bótarétt — úr tryggingum vinnuveitanda og víðar.

Sjóslys

Sjómenn eiga ríkan lögbundinn rétt til bóta eftir slys á sjó — mikilvægt er að sækja hann af þekkingu.

Bætur til þolenda afbrota

Ríkið greiðir þolendum ofbeldisbrota bætur samkvæmt lögum nr. 69/1995 — þótt gerandinn geti ekki greitt.

Frítímaslys

Slys í frítíma eru oftar bótaskyld en fólk heldur — margir eru tryggðir án þess að vita af því.

Ferlið

Svona virkar ferlið

Við sjáum um ferlið fyrir þína hönd frá upphafi til enda: tilkynnum tjónið, öflum gagna, semjum við tryggingafélagið og höldum þér upplýstum á öllum stigum.

  1. Ókeypis fyrsta viðtal

    Við förum yfir málið þitt, metum réttarstöðu þína og segjum þér hreint út hvort tilefni sé til að sækja bætur — þér að kostnaðarlausu og án skuldbindinga.

  2. Tilkynning tjóns

    Við tilkynnum slysið til tryggingafélaga og opinberra aðila eftir því sem við á og gætum þess að engir frestir renni út.

  3. Gagnaöflun

    Við öflum læknisfræðilegra gagna, tekjugagna og annarra sönnunargagna og fáum matsgerð um afleiðingar slyssins þegar heilsufar er orðið stöðugt.

  4. Uppgjör

    Við semjum við tryggingafélagið fyrir þína hönd um sanngjarnar bætur og gætum þess að uppgjörið endurspegli tjónið að fullu.

  5. Bætur greiddar

    Bæturnar eru greiddar til þín.

Kynntu þér ferlið

Ef engar bætur fást greiddar greiðir þú enga þóknun.

Um okkur

Áratugareynsla af skaðabótamálum

Grímur Sigurðarson, hæstaréttarlögmaður, hefur starfað sem lögmaður frá árinu 2004 og hefur áratugareynslu af rekstri skaðabótamála. Hjá Slysum og skaðabótum færðu persónulega þjónustu — málið þitt er alltaf í höndum lögmanns sem þekkir það til hlítar.

Við gætum hagsmuna þeirra sem hafa orðið fyrir tjóni og tryggjum sanngjarnar bætur.

Kynntu þér stofuna

Grímur Sigurðarson, Hæstaréttarlögmaður
Grímur SigurðarsonHæstaréttarlögmaður

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Hér svörum við því sem flestir spyrja um: hvað þjónustan kostar, hvort þú eigir rétt á bótum og hvernig ferlið gengur fyrir sig.

Hvað kostar þjónustan?

Þú greiðir enga þóknun nema bætur fáist. Fyrsta viðtalið er ókeypis og ef við tökum málið að okkur störfum við á grundvelli árangurs: þóknun greiðist aðeins ef bætur fást greiddar, og í flestum tilvikum greiðir tryggingafélagið jafnframt stóran hluta lögmannskostnaðar. Þú tekur því enga fjárhagslega áhættu með því að láta okkur meta málið.

Á ég rétt á bótum?

Ef þú hefur orðið fyrir líkamstjóni í slysi eru góðar líkur á að þú eigir rétt á bótum — úr lögboðnum tryggingum, eigin tryggingum eða frá þeim sem ber ábyrgð á slysinu. Rétturinn fer eftir aðstæðum hverju sinni og þess vegna bjóðum við ókeypis mat: við segjum þér hreint út hvort tilefni sé til að sækja bætur.

Hvað eru bætur vegna líkamstjóns?

Bætur vegna líkamstjóns eru fjárhagslegar bætur til þess sem slasast og skiptast í nokkra liði: þjáningabætur, bætur fyrir varanlegan miska, bætur fyrir varanlega örorku, bætur fyrir tímabundið atvinnutjón og greiðslu sjúkrakostnaðar. Hvaða liðir eiga við fer eftir afleiðingum slyssins í hverju máli fyrir sig.

Sjá allar spurningar og svör

Lentir þú í slysi?

Fáðu ókeypis mat á málinu þínu. Við segjum þér hreint út hvort tilefni sé til að sækja bætur — og ef engar bætur fást greiðir þú enga þóknun.